Upplifðu

Suðurland


List of Services

    Verið velkomin á Hvolsvöll!

    Hótel Hvolsvöllur hefur síðan árið 1984 boðið upp á þægilega gistingu í vinalegu umhverfi.
    Miðlæg staðsetning okkar er tilvalin fyrir þá sem vilja njóta þess sem Suðurland hefur upp á að bjóða. Hvolsvöllur er staðsettur nálægt mörgum frægustu náttúruperlum landsins, eins og Þórsmörk, Seljalandsfossi, Seljavallalaug, Fljótshlíð, Gullhringnum og mörgum fleiri.
    Um Okkur

    Þægileg gisting í vinalegu umhverfi

    Herbergin okkar eru rúmgóð og þægileg, öll hönnuð með þægindi ferðamanna í huga. Hótelið hefur verið fjölskyldurekið í mörg ár og við leggjum metnað okkar í að bjóða viðskiptavinum okkar vinalega og persónulega þjónustu.
    Skoða herbergin

    List of Services

      Veitingastaður

      Veitingastaðurinn okkar er frábær kostur fyrir þá sem vilja njóta góðs matar í afslöppuðu umhverfi.

      Veitingastaðinn má finna í glerskálanum á jarðhæð hótelsins, en þar er bjart og rólegt. Við leggjum mikið upp úr því að hráefnin sem við notum séu þau bestu sem fáanleg eru hverju sinni.
      Sjá meira

      Verum í bandi!

      Þú finnur okkur á instagram: @hotel_hvolsvollur